Home

Fréttir

08. september 2010

Undurbúningur fyrir Þjóðardag Íslands á EXPO þann 11. september á lokastigi

Undirbúningur þjóðardags Íslands á EXPO er nú á lokastigi, þjóðardagurinn verður haldinn þann 11. september
13. ágúst 2010

Gestafjöldi íslenska skálans yfir milljónina!

Starfsfólk íslenska skálans á heimssýningunni í Shanghai tók á móti gesti númer milljón í skálanum á dögunum. Aðsókn í skálann hefur verið stöðug en á milli 10 og 12.000 manns bera sýningu skálans augum á degi hverjum og hafa gert frá opnun 1. maí.
30. júlí 2010

Utanríkisráðherra heimsækir Expó

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra heimsótti Shanghai og EXPO um miðjan mánuðinn á meðan opinberri heimsókn hans til Kína stóð. Á EXPO átti ráðherra átti viðkomu í skálum Íslands og Kína, í þeim síðari heimsótti hann einnig skála Jiangsu og Shaanxi héraða. Jiangsu hérað er eitt af mikilvægustu viðskiptasvæðum Kína og í Shaanxu héraði er að finna íslenskar hitaveitur.

30. júlí 2010

KK band með tónleika í Shanghai

Í tengslum við komu sendinefndar úr ferðamálageiranum til Shanghai hélt KK band tónleika í Shanghai í júnímánuði síðastliðnum. Tónleikarnir voru haldnir á litla sviði menningarmiðstöðvar Expó sem er risavaxin tónleikahöll á heimssýninarsvæðinu. Um 500 manns sóttu tónleikana en þeir voru hinir þriðju sem KK heldur í Shanghai.

30. júlí 2010

Dugguholufólkið á kvikmyndahátíðinni í Shanghai

Á nýafstaðinni kvikmyndahátíð í Shanghai (SIFF) sem haldin var í júní tók Norðurlandaþjóðirnar sig saman um sérstaka kynningu á norrænum barnakvikmyndum innan sýningarinnar, en hugmyndin að framlaginu var upphaflega frá Norrænu Ráðherranefndinni komin. Íslenska bíómyndin Dugguholufólkið sem leikstýrt er af Ara Kristinssyni var á meðal mynda sem sýndar voru.
19. júlí 2010

Katrín Júlíusdóttir fór fyrir ferðamáladögum

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðar- og ferðamálaráðherra, leiddi viðskiptasendinefnd fyrirtækja í ferðaþjónustu 17 júní s.l. í í tengslum við heimssýninguna 2010 í Shanghai.


Styrktaraðilar



Samstarfsaðilar