30. júlí 2010
KK band með tónleika í Shanghai
Í tengslum við komu sendinefndar úr ferðamálageiranum til Shanghai hélt KK band tónleika í Shanghai í júnímánuði síðastliðnum. Tónleikarnir voru haldnir á litla sviði menningarmiðstöðvar Expó sem er risavaxin tónleikahöll á heimssýninarsvæðinu. Um 500 manns sóttu tónleikana en þeir voru hinir þriðju sem KK heldur í Shanghai.
Daginn eftir voru haldnir sérstakir Íslandstónleikar fyrir íslendinga búsetta í Shanghai á tónlistarstað í miðborg borgarinnar. Íslendingasamfélagið í Shanghai telur um 70 manns.




















