Home
30. júlí 2010

Dugguholufólkið á kvikmyndahátíðinni í Shanghai

Á nýafstaðinni kvikmyndahátíð í Shanghai (SIFF) sem haldin var í júní tók Norðurlandaþjóðirnar sig saman um sérstaka kynningu á norrænum barnakvikmyndum innan sýningarinnar, en hugmyndin að framlaginu var upphaflega frá Norrænu Ráðherranefndinni komin. Íslenska bíómyndin Dugguholufólkið sem leikstýrt er af Ara Kristinssyni var á meðal mynda sem sýndar voru.

 Dugguholufólkið fjallar um ungan dreng sem elst upp í úthverfum Reykjavíkur innan um tölvuleiki og farsíma. Þegar hann þarf að flytjast til dreifbýlissvæða í Norðri á hann erfitt með að aðlagast og flýr á brott. Myndin er fimmta kvikmyndin í leikstjórna Ara Kristinssonar en hann er einnig unnið sem tökumaður vð margar helstu kvikmyndir sem teknar hafa verið á Íslandi á undanförnum árum.

Á norrænum hluta SIFF mátti finna myndir frá öllum Norðurlöndunum fimm og leikstjórar þeirra heimsóttu Shanghai til að svara spurningum frá kínverskum aðdáenum og til að skiptast á skoðunum við kínverska kvikmyndagerðarmenn. Norræna ráðið stakk upp á framlaginu en norænn þáttur hátíðarinnar var skipulagður af aðalræðisskrifstofum í Shanghai og þátttökum Norðurlandanna á Heimsýningunni 2010 í Shanghai.

SIFF er haldin árlega og koma þar saman kvikmyndir og leikstjórar frá öllum heimsins hornum.

Styrktaraðilar



Samstarfsaðilar