Home

Miðstöð

Sérstök viðskiptamiðstöð er starfrækt í skálanum þar sem fyrirtæki, stofnanir og frumkvöðlar geta haldið fundi, móttökur og litlar ráðstefnur. Tilgangur miðstöðvarinnar er að bjóða upp á friðsælan vinnustað þar sem gestir verða ekki fyrir truflun frá umferð á EXPÓ 2010 svæðinu og Sjanghæborg. Miðstöðin þjónar einnig sem samkomustaður fyrir samkvæmi og hópefli.

Miðstöðin tekur allt að 30 manns í sæti og er þar á boðstólum tæknibúnaður sem fylgir fundarhaldi eins og myndvörpur, hljóðkerfi o.fl. Sérstakur starfsmaður er innan handar til að tryggja að hugsað sé fyrir öllum smáatriðum. Aðkeypt veitingaþjónusta er einnig á boðstólum ásamt ísköldu Iceland Spring ölkelduvatni í boði styrktaraðila íslenska skálans, Iceland Spring China.

Styrktar- og samstarfsaðilar ásamt meðlimum í IBF, MII og ÍKV ásamt öðrum umsækjendum  geta sótt um að halda fundi í viðskiptamiðstöðinni. Fyrrnefndir aðilar munu fá forgang. Umsóknir um afnot af viðskiptamiðstöðinni skal senda á emaili til: expo2010 (a) mfa.is og skal þá tekið fram hver sækir um, hvaða dag, tíma, lengd o.s.frv. Miðast skal við að umsóknir séu sendar minnst 10 dögum áður en fundur á sér stað.

Styrktaraðilar



Samstarfsaðilar