Ísland á Expó 2010
„Hrein orka – heilbrigt líferni.” er yfirskrift íslenska skálans á EXPÓ 2010. Henni er ætlað að endurspegla náið samband Íslendinga við náttúruöflin sem mótað hafa eyjuna í Norður Atlantshafi í gegnum aldirnar. Aðaláherslur þáttöku Íslands á Sýningunni eru á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, þekkingariðnaðar og ferðamennsku. Leitast er við að útskýra fyrir sýningargestum í Sjanghæ hvernig á Íslandi sé að finna jarðhita og stærstu jökla Evrópu. Saman skapa þessi náttúrufyrirbæri gjöfula orkuauðlind. Íslenski skálinn verður 500 fermetrar og helstu hlutar hans verða anddyri, viðskiptamiðstöð og aðalsalur þar sem stuttmynd um Ísland er varpað á alla fjóra veggi og loft. Skálinn er staðsettur á sama svæði og hin Norðurlöndin.




















