Hönnun og hugvit
Heimssýningar í gegnum aldirnar eiga það allar sameiginlegt að þjóðir hafa þar sýnt nýjasta nýtt sem þær hafa fram að færa á sviði hönnunar og hugvits, einkum og sér í lagi byggingarlist og tækni. Í því samhengi má nefna Eiffel turninn í París, Geimnálina í Seattle o.s.frv. Heimssýningin í Sjanghæ 2010 verður ekki undantekning þar á og mun íslenska þátttakan fylgja fordæmi Kínverja og annarra þjóða og sýna það nýjasta í íslenskri hönnun, hugviti, listum og tækni.
Frekari upplýsingar um hönnun og hugvit á Íslandi má finna á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvarinnar: www.honnunarmidstod.is
Fyrirspurnir um kynningu á hönnun og hugviti á Heimssýningunni 2010 í Sjanghæ má senda á expo2010 (a) mfa.is




















