Ferðamál
Samhliða auknum hagvexti og lífsgæðum í Kína eykst áhugi heimamanna á ferðalögum erlendis. Í íslenska skálanum á Heimssýningunni munu þeir geta fræðst um það hvernig best sé að komast til Íslands, hvenær og að hverju þarf að huga þegar Ísland er sótt heim. Enn fremur er það einn helsti tilgangur þáttöku Íslands á Heimssýningunni 2010 í Sjanghæ að kynna íslenskan ferðamannaiðnað á kínverskum markaði en fjöldi ferðamanna þaðan út fyrir landsteinana eykst nú ár frá ári. Árið 2008 ferðuðust samtals 45,8 milljónir Kínverja til útlanda sem var 11,9% aukning frá árinu áður. Á sama tíma óx landsframleiðsla landsins 9% en ljóst er að vöxtur efnahagsins í Kína mun á næstu árum knýja ferðamannaiðnaðinn áfram og ferðum landsmanna erlendis halda áfram að fjölga.
Frekari upplýsingar um kynningu á Íslandi sem áfangastað má finna á heimasíðu ferðamálaráðs: www.icetourist.is
Fyrirspurnir um kynningu á íslenskum ferðamálaiðnaði á Heimssýningunni 2010 í Sjanghæ má senda á expo2010 (a) mfa.is




















