Styrktaraðilar
-
Icelandair
Icelandair er leiðandi flugfélag sem býður ferðir til og frá Íslandi og hagstæður kostur fyrir flug yfir Atlantshafið. Félagið einbeitir sér að veita viðskiptavinum sínum öruggar og traustar flugferðir sem og einstaka þjónustu. Icelandair flýgur til 23 stórborga í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada. Félagið notar staðsetningu Íslands Íslands mitt á milli Ameríku og Evrópu sem viðskiptatækifæri og hefur til að byggt upp alþjóðalegt leiðakerfi með Ísland sem miðpunkt. Icelandair starfar á þremur: ferðir FRÁ Íslandi, ferðir TIL Íslands og ferðir UM Ísland - þ.e. flug á milli Evrópu og Ameríku með millilendingu á Íslandi. Með því að sameina þessa markaði um borð sömu Boeing 757 flugvélunum og í sama leiðakerfi hefur félaginu tekist að koma á fót og efla starfsemi sína jafnt og þétt. Auk þess að auka verulega ferðamannastrauminn til landsins og styrkja atvinnulífið sem þróast hefur í kringum ferðamál hérlendis hefur vöxtur Icelandair erlendis skapað framúrskarandi samgöngur á milli Íslands og annarra landa.
-
Iceland Spring
Luxe Ispring Trading Co. Ltd., er dótturfyrirtæki Luxe China Investment Ltd., með höfuðastöðvar í Peking og útibú í Sjanghæ. Luxe Ispring er inn- og útflutningsfyrirtæki á hágæða heilsuvörum. Fyrirtækið er hefur einkaumboð á markaðsetningu og dreifingu á Iceland Spring ölkelduvatni á meginlandi Kína og einbeitir sér sem slíkur að dreifingu, þjónustu við viðskiptavini og kynningaruppákomum í Kína. Luxe Ispring er nýtt fyrirtæki í Kína og markaðsetur nýja vöru á Kínamarkaði, þ.e. Iceland Spring, með untu söluteymi sem tileinkar sér áhuga, sveigjanleika og góða yfirsýn yfir markaði í öllum sínum störfum.
-
Blue Lagoon
Bláa Lónið hf var stofnað árið 1992 og er meginmarkmið félagsins að vera í forystu um uppbyggingu heilsu- og ferðaþjónustu á Íslandi. Öll starfsemi félagsins byggir á einstakleika og eiginleikum Blue Lagoon jarðsjávarins sem inniheldur steinefni, kísil og þörunga eða nálægð við jarðsjóinn og einstakt umhverfi hans. Starfsemi félagsins er á þremur sviðum: rekstur Bláa lónsins, þróun og markaðssetning á Blue Lagoon húðvörum byggðum á virkum efnum Blue Lagoon jarðsjávarins og rekstur heilsulindar þar sem veitt er meðferð við húðsjúkdómnum psoriasis. Hjá fyrirtækinu starfa 90 manns.




















