Home

Sjanghæ 2010

„Betri borg – betra líf” er yfirskrift EXPÓ 2010, sem haldin er í Sjanghæ, Kína. 191 þjóðir taka þátt í sýningunni ásamt u.þ.b. 60 alþjóðastofnunum. Á sýningunni munu þjóðir heims kynna menningu sína og atvinnulíf. Tekið var frá 5,28 ferkílómetra svæði í hjarta Sjanghæborgar fyrir Heimssýninguna sem mun ganga í 6 mánuði frá 1. maí 2010 til 31. október 2010. Búist er við 70 milljón gestum yfir allan sýningartímann eða u.þ.b. 380.000 gestum á dag. Kínverska ríkisstjórnin og borgaryfirvöld í Sjanghæ hafa litlu sparað til þess að Heimssýningin 2010 verði sú veglegasta hingað til, bæði hvað varðar fjölda þáttakenda, gesta og glæsileika sýningarsvæðisins.

Upplýsingarnar á þessari síðu eru teknar af heimasíðu skipulagsskrifstofu Heimssýningarinnar 2010 Sjanghæ. Hana má finna á: www.expo2010.gov.cn

 

Styrktaraðilar



Samstarfsaðilar