Viðskiptaþjónusta
Í íslenska skálanum er starfrækt viðskiptamiðstöð og viðskiptaþjónusta. Í viðskiptamiðstöðinni er skrifstofu-, fundar- og sýningaraðstaða fyrir íslensk fyrirtæki sem vilja nýta sér íslenska skálann til að kynna starfsemi sína. Íslenska skálann er þannig hægt að nýta sem vettvang til að efla tengslin í Kína. Viðskiptaþjónustan mun halda utan um og miðla gögnum til og frá íslenskum aðilum og aðstoða eftir mætti við að koma á sambandi milli íslenskra fyrirtækja og mögulegra viðskiptavina í Kína. Þeir sem vilja nýta sér viðskiptaþjónustuna geta haft samband í gegnum netpóst með því að skrifa á expo2010 (a) mfa.is




















