EXPÓ
Á heimssýningum geta þjóðir heims sýnt umheiminum það besta og nýjasta sem þær hafa upp á að bjóða á sviði vísinda, menningar, viðskipta o.s.frv. Þær eru einnig mikilvægur vettvangur fyrir þjóðir til að kynna ímynd sína út á við.
Á fyrri heimssýningum hafa mörg ólík fyrirbæri litið dagsins ljós og hafa þau oft verið talin bylting á sínu sviði. Sem dæmi má nefna rafbíla, rúllustiga og talsímann. Oft þegar heimssýningum líkur standa minnisvarðar eftir þær um aldir. Sem dæmi má nefna Geimnálina í Seattle, Atomíum í Brussel og Eiffel turninn í París.
Skrifstofa heimssýninga (f. Bureau International des Expositions (BIE)) stjórnar og setur reglur um fjölda og framkvæmd heimssýninga. Til að sjá lista yfir fyrri sýningar og frekari upplýsingar er hægt að heimssækja heimasíðu BIE: www.bie-paris.org
Upplýsingarnar á þessari síðu eru teknar af heimasíðu skipulagsskrifstofu Heimssýningarinnar 2010 Sjanghæ. Hana má finna á: www.expo2010.gov.cn




















