Home

Þátttaka Íslands

Á heimssýningunni leggur Ísland fyrst og fremst áherslu á orku-, ferðamál og hönnun & hugvit undir yfirskriftinni „Hrein orka – heilbrigt líferni”. Að auki er leitast við að skapa grundvöll fyrir íslensk fyrirtæki til að afla sér tengsla, upplýsinga og viðskiptasambanda í Kína og kynna íslenska menningu og stofnanir. Íslenski sýningarskálinn er 500 fermetrar og staðsettur á sama svæði og hin Norðurlöndin.

 

Ríkisstjórn Íslands tók ákvörðun um þátttöku í Expó 2010 þann 11. janúar 2008. Þrátt fyrir að aðstæður hefðu breyst mikið, ákvað Alþingi í lok desember s.l. að veita 140 m.kr. til verkefnisins. Heildarkostnaður við hönnun, uppsetningu og rekstur íslenska skálans er áætlaður um 210 m.kr.

 

Hönnunarsamkeppni var haldin um mitt ár 2008 og voru tillögur metnar á grundvelli frumleika og notagildis en einnig voru kröfur skipulagsaðila sýningarinnar hafðar að leiðarljósi. Val dómnefndar tók enn fremur með í reikninginn aðalþema Heimssýningarinnar í Sjanghæ 2010 (Betri borg – betra líf), kostnað og uppsetningu.

 

Tillaga frá Plús Arkitektum og Saga Film var valin til frekari þróunar. Síðar var hún kynnt fyrir skipuleggjendum Heimssýningarinnar í Sjanghæ. Páll Hjaltason arktitekt frá Plús Arktiektum var tilnefndur sem aðalhönnuður og listrænn stjórnandi Íslenska skálans á Expó.

Verkefninu er stýrt af fimm manna framkvæmdastjórn skipaðri fulltrúm frá:

  • Utanríkisráðuneytinu,
  • Útflutningsráði,
  • Framkvæmdasýslu Ríkisins.

Sérstakur framkvæmdastjóri yfir verkefninu starfar í umboði stjórnar. Til að tryggja hlutdeild hagsmuna- og styrktaraðila hefur samráðshópur verið myndaður sem mun vera framkvæmdastjórn til ráðgjafar. Gert er ráð fyrir að 16 til 18 starfsmenn verði starfandi á vöktum í Shanghai og sinni rekstri skálans á meðan á sýningunni stendur. Þá munu kínverskir íslenskunemar við háskóla í Peking aðstoða gesti skálans í starfsnámi til skemmri tíma.

Styrktaraðilar



Samstarfsaðilar