„Hrein Orka – heilbrigt líferni“
...er yfirskrift íslenska skálans á Heimssýningunni 2010 í Sjanghæ. Aðaláherslur þáttöku Íslands á Sýningunni eru á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, þekkingariðnaðar og ferðamennsku. Heimssýningin í Sjanghæ er sú stærsta og umfangsmesta sem haldin hefur verið með þátttöku 186 þjóða og u.þ.b. 60 alþjóðastofnanna undir yfirskriftinni “Betri borg, betra líf”. Heimssýninginn er kjörinn vettvangur til að byggja upp ímynd Íslands á alþjóðavettvangi en gert er ráð fyrir að um 70 milljónir gesta heimsæki heimssýninguna. Sýningin opnaði þann 1. maí og stendur til 31. október.
Þáttaka Íslands í EXPÓ 2010 er einstakt tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir til að kynna vörur sínar og þjónustu á Kínamarkaði. Sérstök viðskiptamiðstöð er starfrækt í skálanum með aðstöðu til funda- og ráðstefnuhalda. Þá er boðið upp á sérstaka ráðgjafaþjónustu fyrir íslensk fyrirtæki í þeim tilgangi að nýta sem best þau tækifæri sem í Sýningunni felast.
Nýjustu fréttir
Lokafjöldi gesta í íslenska skálann um 2.3 milljónir
Viktoría krónprinsessa Svía heimsótti íslenska skálann
Ríkisarfi Svíþjóðar heimsótti íslensk skálann á Heimssýningunni í Shanghai þann 13. nóvember 2010 ásamt eiginmanni sínum Daniel Westling. Hreinn Pálsson, framkvæmdastjóri íslensku þáttökunnar á Expó tók á móti þeim og fylgdi þeim um íslenska skálann.
Sýningum í Nordic Lighthouse lýkur með kynningu




















